Halló það er frekar langt síðan ég bloggaði……
Jaaaa….. ég er ekki viss hvað ég á að skrifa. En það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég verð að skrifa eitthvað …
Ég er í skóla á Laugum byrjaði í honum 29.ágúst sem sagt 2 mánuðir síðan er í 2.manna herbergi ein mjög þægilegt er á vist sem heitir Tröllasteinn það er góð vist eða mér finnst það. Ég er á neðri hæðinni og það er stundum læti, þar er líka fjörugt fólk sem býr hér enda er ég á þessari vist hehe … mér gengur bara vel búinn að fara í nokkrar kannanir í stæ. er ég búinn að fá 9,0 . 9,4 . 9,7 og 10. Á eftir að fá eina í viðbót en í íslensku fékk ég 8,7 en er ekki búinn að fá að vita hvað ég fékk í ensku, eina sem ég fékk að vita var það að ég náði henni sem er bara gott…
Mamma dó fyrir stuttu. Blessuð sé minning hennar…
Nokkur orð frá mér til hennar. Helga K. Jónsdóttir var mjög góð kona og Frábær móðir! Síðan ég var pínu lítil var hún mín fyrirmynd því hún var góð við alla, það fór mjög fátt í taugarnar á henni, hún lét eins og asni innan um fólk sem við þekktum ekkert, bara til að stríða mér. Mér fannst þetta auðvitað skelfilegt á 12 –15 ára aldrinum skammaðist mín fyrir að hún væri móðir mín…. Ég ætla að segja hér nokkrar sögur af henni, sem ég gleymi aldrei..
Ég man nú ekki hvað ég var gömul á þessum tíma en alla veganna man ég við áttum heima í Bakkagötu 20.. Ég og Krissa vorum útí garði það var gott veður sól og blíða, við vorum að tala um stráka svo sáum við mömmu koma útí glugga og hún byrjaði að ulla á okkur og gretta að sjálfsögðu gerðum við það á móti síðan lyftir mamma bolnum upp og glennir brjóstunum framan í okkur ég náttúrlega seig niðri í jörðina ég skammaðist mín svo mikið en Krissa hló svo mikið að hún var byrjuð að grenja ég byrjaði að kalla á mömmu og biðja hana vinsamlegast hætta þessu en nei nei þá þurftu náttúrlega ferðamenn að keyra fram hjá þá fór brosið af mömmu hún rífur bolinn niður og stekkur úr glugganum, Krissa var enn hlæjandi eins og hálfviti og ég sat þarna hélt fyrir andlitið og hristi hausinn…
Ég var 14 ára á þessum tíma. Ég og mamma vorum að fara til Ak og buðum Láru og Snæfríði að koma með þá væntanlega voru þær 15 ára..
En alla veganna ég fékk leyfi frá móður minni til að fá tattoo og ég var rosalega spennt þar til ég kom á staðinn þá fékk ég rosalegan hnút í magann, mamma, Lára og Snæfríður komu með mér. Það tók smá tíma að ákveða hvaða tattoo ég vildi en það tókst á endanum, svo þegar hann ætlaði að byrja þá greip ég í höndina á mömmu eins fast og ég gat því ég bjóst við einhverju hræðilegu en um leið og hann byrjaði, slakaði ég á hendinni hennar mömmu þetta var ekki eins hræðilegt og ég hélt.. þá fékk mamma þá hugmynd að fé sér eitt líka þannig að hún fór inn í stofu hjá Jónasi og skoðaði tattoo- bækurnar. Lára og Snæfríður komu til að sjá en lára labbaði til mömmu alveg hvít í framan hehe… en jamm svo fórum við á Greifann og fengum okkur pizzu, þegar við vorum búnar að fá matinn skrapp mamma aðeins í burtu og segir okkur ekkert hvað hún er að fara gera en alla veganna kemur aftur voðalega kát og við spurðum hvað væri svona skemmtilegt en fengum ekkert að vita það en við kláruðum matinn og þegar við ætluðum að standa upp kemur ein af þjónustu stúlkunum með 3 ísa og segir við okkur svolítið hátt “oooo hvað þið eruð duglegar að klára matinn, hérna er ís handa ykkur elskurnar” Við roðnuðum náttúrulega allar hræðilega mikið en tókum við ísnum með falskt bros á vör og borðum hann steinþegjandi. Svo þegar hann var búinn fórum við aftur til kópaskers..
Og ég er ekki búinn en það sem ég er búinn að skrifa svo mikið ætla ég samt að bæta við smá brot frá því þegar ég bauð mömmu með mér á slúttið í fyrra... það var þannig að ég var búinn að vera vinna í fjallalambi í einhvern tíma og sláturtíðin var búinn þá er slúttið og svo þegar ég kom heim og var að fara í bað þá kemur mamma til mín og spyr mig hvort hún megi koma með þá sagði ég við hana að henni verður að vera boðið og þá okey nenniru að bjóða mér með og ég hugsa í smá stund og horfi á hana og hún fer á hné og bara plízzz... þannig að ég samþykkti það. Þá byrjaði hún að hugsa hvern hún æti að biðja um að passa ég nefndi Söru við hana og hún bara jú okey hringdu þannig að ég tek upp gemsan minn og hringi í Söru og spyr hvort hún sé til í að gera mömmu þennan greiða og það er ekkert vanda mál, ég segi móður minni það og hún hoppaði af kæti, síðan er Sara komin og situr í sófanum á meðan ég og mamma erum að taka okkur til síðan var ég tilbúin og fer til Söru og kenni henni á video tækið síðan kemur mamma hlaupandi eftir ganginum í engu nema sokka buxum og syngur “ ég er að fara á ball!!! Ég er að fara á ball lalalala,, og fer inní eldhús og nær sér í einn öllara og hleypur til baka syngjandi... svo þegar hún var loksins búinn að klæða sig og búinn að mála sig þá fórum við út löbbuðum út í fjallalamb og byrjuðum fjörið.....
En svona eru nokkrar minningar sem ég gleymi aldrei gaman að geta deilt þeim með ykkur... en já eins og ég sagði þarna fyrst var mamma rosalega góð og líka létt rugluð en er það ekki bara betra
og allt það góða sem ég hef er frá henni, hegðun mína og fleira þannig að fyrir þá sem eru búnir að velta því fyrir ykkur af hverju ég er svona létt rugluð þá sjáið þið það hér hehe
og það er ekki bara mömmu að þakka hvernig ég er það er vinum mínum að þakka, ömmu og afa, Erlu systir mömmu, bræðrum hennar, Kristín Ósk svo 2 frændur sem ég hef litið mikið upp til: Stefán Jónsson og Elvar Már Stefánsson mér þykir afskaplega vænt um ykkur öll og takk fyrir allan stuðninginn sem ég er búinn að fá og mun sennilega fá áfram;*
En jamm ég held að þetta sé gott í bili þannig að ég kveð ykkur vonandi fannst ykkur þetta ekki svakalega leiðinlegt...
Love you all;* og já svona áður en ég kveð er kominn með kall sem heitir Christian